Um sýningar og leiksýningar
Í Landámssetri eru tvær fastar sýningar um landnámið og Egilssögu. Mikil metnaður hefur verið lagður í að koma efninu til skila á nútímalegan hátt með aðferðum leikhússins og hjálp fjölda listamanna sem unnið hafa stórkostleg listaverk í tré.
Hljóðleiðsögn leiðir gesti um sýningarnar. Hún er fáanleg á íslensku og 9 erlendum tungumálum (ensku, norsku, þýsku, frönsku, ítölsku, spænsku, rússnesku, pólsku og japönsku). Til viðbótar er sérstök barnaleiðsögn á íslensku sem hentar börnum allt niður í fjögurra til fimm ára aldur. Leiðsögn um hvora sýningu tekur um 30 mín.
Landnámssýningin fjallar um landnám Íslands og í Egilssýningunni er sjónum beint að einum litríkasta persónuleika sögualdar, Agli Skalla-Grímssyni.













